Erlent

Ein milljón varð fyrir tjóni

Að minnsta kosti ein milljón manna hefur orðið fyrir tjóni þegar fellibylurinn Wilma gekk yfir Mexíkó um helgina. Minnst sex hafa látist í óveðrinu. Alvarlegust er eyðileggingin á ferðamannasvæðinu Cancún en þar eru sjö hundruð þúsund manns talin hafa misst heimili sín. Talið er að þrjú hundruð þúsund manns til viðbótar hafi orðið fyrir einhverjum skaða.

Strandbærinn Cancún er umflotinn vatni. Skaðinn er gríðarlegur. Ræningjar fara um verslanamiðstöðvar og láta greipar sópa. Talið er að Wilma komi til Flórída á morgun og er búist við að fellibylurinn hafi enn styrk upp á tvo til þrjá. Sum svæði Flórída eru þegar illa leikin en þau hafa orðið fyrir flóðum eftir miklar rigningar. Mat hefur verið dreift um Flórída og eru herþyrlur í viðbragðsstöðu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×