Erlent

Sýrlendingar axli ábyrgð

Sýrlensk stjórnvöld verða að sæta ábyrgð vegna morðsins á Rafik al-Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Þetta sagði Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en fyrr í dag birtist skýrsla Sameinuðu þjóðanna þar sem kemur fram að hátt settir sýrlenskir og líbanskir embættismenn tengdust morðinu. Sýrlensk stjórnvöld brugðust ókvæða við skýrslu rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Sendiherra þeirra í Washington sagði skýrsluna byggja á slúðri og kvað hana hvort tveggja ósanngjarna og endurspegla andúð á sýrlenskum stjórnvöldum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×