Áfengisauglýsingabann samþykkt 21. október 2005 00:01
Bann við áfengisauglýsingum í norskri löggjöf samræmist EES-samningnum að sögn EFTA-dómstólsins. Þó sé nauðsynlegt að meta aðstæður í hverju landi fyrir sig. Vefrit Viðskiptaskrifstofu Íslands greinir frá því í nýjasta tölublaði sínu að tímaritið Vinforum í Noregi hafi birt auglýsingu á frönskum vínum í desember 2003, en slíkar auglýsingar stríða gegn banni við birtingu áfengisauglýsinga í Noregi. Útgefendur tímaritsins voru kærðir af þeim sökum til norska Markaðsráðsins sem er sjálfstæð úrskurðarnefnd þar í landi. Útgefendurnir báru fyrir sig að bann við áfengisauglýsingum í Noregi samræmdist ekki ákvæðum EES-samningsins. Af þeim sökum ákvað Markaðsráðið að óska eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins. Dómstólinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að bann við áfengisauglýsingum gæti verið í samræmi við EES-samninginn. Dómstóllinn taldi nauðsynlegt að meta, í hverju tilfelli fyrir sig, hvort bann við slíkum auglýsingum væri líklegt til þess að ná markmiðum sínum og hvort mögulegt væri að grípa til annarra aðgerða sem skiluðu sama árangri, en trufluðu síður viðskipti með áfengi á Evrópska efnahagssvæðinu. Markaðsráðið hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að bann við áfengisauglýsingum í Noregi sé í fullu samræmi við ákvæði EES-samningsins, einkum í ljósi þess að bannið er hluti af öflugri áfengisvarnarstefnu norska stjórnvalda.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira