Fleygði börnunum sínum í sjóinn 20. október 2005 00:01
Bandarísk kona hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt öll þrjú börnin sín. Lashaun Harris, 23 ára gömul kona búsett í Oakland, játaði sök skömmu eftir að hún var handtekin. Íbúar San Francisco og Oakland eru slegnir miklum óhug eftir að málið kom upp því nú hefur verið upplýst að Harris fleygði börnunum sínum fram af bryggju og í San Francisco-flóann. Yngsta barnið var eins árs, það næstyngsta þriggja ára og það elsta sex ára. Vitni sá til konunnar þegar hún fleygði börnum sínum út í sjó. Vitnið hringdi strax í lögregluna og fjórum tímum síðar fannst lík næstyngsta barnsins. Í gær voru lík hinna tveggja enn ófundin en gríðarlega straumþungt er í San Francisco-flóa og gerir það leitarmönnum erfitt fyrir. Málið hefur vakið mikla athygli og mætti Gavin Newsom borgarstjóri á vettvang til að fá upplýsingar. Það eina sem borgarstjórinn sagði við blaðamenn var: „Mér býður við þessu." Lögreglan hefur upplýst að konan hafi sagst hafa fleygt börnunum fram af bryggjunni eftir að raddir í höfði hennar höfðu sagt henni að gera það. Konan bjó hjá Hjálpræðishernum og sagði Mary Ann Ramirez, starfsmaður þar, að hana hefði aldrei grunað að Harris væri fær um slík óhæfuverk. Hún hefði talað við Harris daginn áður en hún myrti börnin sín og þá hefði legið vel á henni. Bryggjan, Pier 7, þar sem Harris fleygði börnunum sínum fram af er frægur ferðamannastaður þar sem meðal annars má finna sögufræga ferjubyggingu.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira