Erlent

Fleygði börnunum sínum í sjóinn

Bandarísk kona hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt öll þrjú börnin sín. Lashaun Harris, 23 ára gömul kona búsett í Oakland, játaði sök skömmu eftir að hún var handtekin. Íbúar San Francisco og Oakland eru slegnir miklum óhug eftir að málið kom upp því nú hefur verið upplýst að Harris fleygði börnunum sínum fram af bryggju og í San Francisco-flóann. Yngsta barnið var eins árs, það næstyngsta þriggja ára og það elsta sex ára. Vitni sá til konunnar þegar hún fleygði börnum sínum út í sjó. Vitnið hringdi strax í lögregluna og fjórum tímum síðar fannst lík næstyngsta barnsins. Í gær voru lík hinna tveggja enn ófundin en gríðarlega straumþungt er í San Francisco-flóa og gerir það leitarmönnum erfitt fyrir. Málið hefur vakið mikla athygli og mætti Gavin Newsom borgarstjóri á vettvang til að fá upplýsingar. Það eina sem borgarstjórinn sagði við blaðamenn var: „Mér býður við þessu." Lögreglan hefur upplýst að konan hafi sagst hafa fleygt börnunum fram af bryggjunni eftir að raddir í höfði hennar höfðu sagt henni að gera það. Konan bjó hjá Hjálpræðishernum og sagði Mary Ann Ramirez, starfsmaður þar, að hana hefði aldrei grunað að Harris væri fær um slík óhæfuverk. Hún hefði talað við Harris daginn áður en hún myrti börnin sín og þá hefði legið vel á henni. Bryggjan, Pier 7, þar sem Harris fleygði börnunum sínum fram af er frægur ferðamannastaður þar sem meðal annars má finna sögufræga ferjubyggingu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×