Erlent

Öflugasti fellibylur sögunnar

Tugþúsundir íbúa og ferðamanna í Mexíkó og Kúbu leituðu í gær skjóls undan fellibylunum Wilmu en bylurinn fer yfir Yucatan-skaga í Mexíkó í vikulokin. Yfirvöld í Hondúras, Níkaragva, á Jamaíka og á nokkrum eyjum í Karabíska hafinu eru í viðbragðsstöðu en búist er við að fellibylurinn komi að ströndum Flórída í Bandaríkjunum um helgina. Bandaríska fellibyljamiðstöðin í Miami hefur staðfest að Wilma sé öflugasti  fellibylur sem sögur fara af á Atlantshafi en hann mælist nú af stærðinni fimm á Saffír-Simpson kvarða um stærð fellibylja. Byrjað er að flytja fólk á brott í Mexíkó, Kúbu og sunnanverðu Flórídaríki. Fullvíst er talið að olíuvinnslustöðvar og olíuhreinsistöðvar í sunnanverðum Bandaríkjunum sleppi við óveðrið að þessu sinni en hins vegar er útlit fyrir að appelsínu- og sykurreyrsræktendur í Flórída verði fyrir miklu tjóni þegar bylurinn fer þar yfir. Vindhraði Wilmu var mældur snemma í morgun og reyndist hann vera um 70 metrar á sekúndu í verstu hviðunum. Þá spá veðurfræðingar að úrkoman í fjalllendinu á Kúbu verði 63 sentímetrar í dag og 38 á morgun á Cayman-eyjum og Jamaíka í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×