Minnst spilling sögð á Íslandi 18. október 2005 00:01
Á árlega uppfærðum lista stofnunarinnar Transparency International, sem sérhæfir sig í að meta og fylgjast með spillingu í löndum heims, er Ísland talið minnst spillta land veraldar. Mest er spillingin aftur á móti í Tsjad, Bangladess, Túrkmenistan og Myanmar (Búrma). Þetta kemur fram í nýjustu skýrslu stofnunarinnar sem birt var í gær. Þar segir að í yfir tveimur af hverjum þremur af þeim 159 löndum sem skýrslan nær til sé spilling á alvarlegu stigi. Þetta hamli viðleitni til að uppræta fátækt í heiminum. Á einkunnaskala Transparency International, sem mælir mat á spillingu í viðkomandi landi (Corruption Perception Index, CPI), fær Ísland einkunnina 9,7 en Tsjad og Bangladess 1,7. Einkunnagjöfin er byggð á umsögnum fólks sem er sérfrótt um viðkomandi lönd, háskólafólk og embættismenn, og fólk sem stundar viðskipti í þessum löndum. Peter Eigen, stjórnarformaður stofnunarinnar sem hefur höfuðstöðvar sínar í Berlín, segir spillingu í stjórnsýslunni auka á fátækt og eymd í mörgum þróunarlöndum. "Þessar tvær plágur nærast hvor á annarri og læsa íbúana í vítahring eymdar," tjáði Eigen AP-fréttastofunni. "Það verður að ganga hart fram gegn spillingu ef þróunaraðstoð á að skila áþreifanlegum árangri í að hjálpa fólki upp úr fátækt." Þau ríki sem lenda neðst á listanum eru flest einnig meðal þeirra fátækustu. Þau eru flest í Afríku. Ríkin sem álitin eru minnst spillt eru jafnframt þau þróuðustu og ríkustu. Næst á eftir Íslandi koma Finnland (9,6), Nýja Sjáland (9,6), Danmörk (9,5), Singapore (9,4), Svíþjóð (9,2), Sviss (9,1), Noregur (8,9), Ástralía (8,8) og Austurríki (8,7). Nokkur lönd færðust upp um nokkur sæti frá því í fyrra. Þar á meðal eru Eistland, Frakkland, Hong Kong og Japan.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira