Einstök lest tekin í gagnið í Kína 16. október 2005 00:01
Hún fer hærra en nokkur hefur farið á undan henni, lestin sem Kínverjar vígðu með stolti um helgina. Eftir áratuga starf hefur loksins verið lokið við að leggja lestarteina þvert yfir Tíbet. Þar brunar lest sem á engan sinn líka. Það var árið 1958, átta árum eftir að kínverski kommúnistaflokkurinn sendi hersveitir sínar inn í Tíbet, sem hafist var handa við lagninu lestarteina frá höfuðborginni, Lhasa, til Qinghai-héraðs í norðvesturhluta landsins. Nú, nærri hálfri öld síðar, er smíðinni lokið. Lestin er söguleg fyrir fleiri sakir. Til að mynda fer engin lest hærra, en þessi liggur hæst í ríflega fimm þúsund metra hæð yfir sjávarmáli. Eðli máls samkvæmt er ekki auðvelt að anda þar og því eru lestarvagnarnir loftþéttir og þrýstijafnaðir eins og farþegaflugvélar. Leiðin liggur um hundruð kílómetra sífrera og var meira en að segja það að leggja teinana, sem eru sérstaklega hannaðir til að þola álagið og hitabreytingar. Verkamennirnir voru með súrefniskúta til að lifa af. Gagnrýnendur lestarinnar segja hana leiða til þess að kínverskir innflytjendur flykkist nú til Tíbet og kaffæri þar heimamenn og menningu þeirra.
Erlent Fréttir Mest lesið Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Stúlkan er fundin Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Fleiri fréttir Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sjá meira