Erlent

Banvæn fuglaflensa í Rúmeníu

Landbúnaðarráðuneyti Rúmeníu tilkynnti í gær að rannsóknir hefðu staðfest að fuglaflensuveira sem fundist hefur í fuglum í landinu sé af H5N1 afbrigðinu, sem getur borist í menn. Fuglarnir voru villtir og fundust dauðir við árósa Dónár, en í síðustu viku fannst þetta afbrigði veirunnar einnig í alifuglum í Tyrklandi. Neyðarfundur var haldinn í gær á vegum yfirdýralæknisembættis Rúmeníu, landbúnaðarstofnana og innanríkisráðuneytisins. Landshlutinn þar sem fuglaveiran fannst hefur verið settur í einangrun, og eru allar bifreiðar sem ferðast inn í eða út úr svæðinu sótthreinsaðar. Þó þetta afbrigði veirunnar sé afar smitandi meðal fugla er erfitt fyrir fólk að sýkjast af veirunni. Fólkið sem látist hefur úr þessu afbriðgi veirunnar hefur nær allt verið Asískir alifuglabændur, sem smitast hefur af því að meðhöndla sýkta fugla. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur skipað aðildarríkjum sínum að herða á aðgerðum gegn fuglaflensunni, en varar á sama tíma við ástæðulausum ótta þar sem veiran hefur enn ekki stökkbreyst. Stjórnvöld margra Evrópulanda velta því nú fyrir sér hvort banna skuli kjúklingabændum að hleypa fuglinum út, og hefur landbúnaðarráðherra Rúmeníu beðið alifuglabændur í landinu um að halda fuglum sínum inni. Skotveiðar hafa verið bannaðar á þeim svæðum þar sem fuglaflensan hefur fundist í Tyrklandi og í Rúmeníu, og jafnframt hefur Evrópusambandið bannað innflutning alifugla og eggja frá þessum tveimur löndum. Talið er að farfuglar beri veiruna, og óttast er að hún muni finnast víðar á næstu vikum. Sérstaklega er talið líklegt að hún muni finnast vestar í Evrópu, í Mið-Austurlöndum og í Afríku, en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin minnir á að hættan á að fólk smitist af fuglaflensuveiru er afar lítil



Fleiri fréttir

Sjá meira


×