Á annað hundrað í valnum 14. október 2005 00:01
Rússneskir her- og lögreglumenn kembdu í gær í gegnum Nalchik, héraðshöfuðborg Kákasushéraðsins Kabardino-Balkariya, í leit að meintum íslömskum uppreisnarmönnum sem á fimmtudag gerðu óvæntar árásir á stjórnsýslubyggingar og lögreglustöðvar í borginni. Að minnsta kosti 108 manns lágu í valnum eftir átökin. Talsmenn stjórnvalda fullyrtu í gær að öll vopnuð mótstaða hefði verið kveðin niður. Menn hefðu þó áhyggjur af því að vígamenn gætu hafa látið sig hverfa í fjöldann meðal óbreyttra borgara og reynt að ná þar vopnum sínum á ný. Vladimír Pútín Rússlandsforseti hét því að allar tilraunir til að endurtaka slíkar árásir yrðu kveðnar niður með hörku. En árásirnar sýndu glögglega að uppreisnarátök eru að breiðast frekar út um Kákasussvæðið. Er talsmenn yfirvalda lýstu í gær árangursríkum aðgerðum til að uppræta uppreisnarmenn í Nalchik varð ljóst að árásarmennirnir hefðu tekið að minnsta kosti 15 gísla í skrifstofum hér og þar í borginni. Af þeim 108 mönnum sem féllu í átökunum, eftir því sem AP-fréttastofan komst næst, voru 72 árásarmenn og 24 lögreglumenn. Ýmsum sögum fór af mannfallinu en að því er héraðsyfirvöld greindu frá létu 18 óbreyttir borgarar lífið og 139 særðust. Um þrjátíu uppreisnarmenn voru handteknir. Kabardino-Balkariya er vestur af Téténíu, þar sem stríð aðskilnaðarsinnaðra uppreisnarmanna gegn rússneskum yfirráðum hefur staðið í á annan áratug. Í Dagestan, austan við Téténíu, hafa uppreisnarmenn einnig látið áberandi meira að sér kveða á þessu ári.
Erlent Fréttir Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira