Tugir falla í árás uppreisnarmanna 23. október 2005 15:04
Téténskir uppreisnarmenn lýstu ábyrgð á árásinni, en með henni færðist vettvangur stríðs íslamska uppreisnarmanna á Kákasussvæðinu gegn Rússum enn frekar út, en það hefur nú staðið í á annan áratug. Vladimír Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði hernum að loka Nalchik alveg af til að hindra að nokkur uppreisnarmaður kæmist undan. Hver sá sem gerði sig líklegan til að sýna vopnaða mótspyrnu skyldi skotinn. Ágiskanir um fjölda árásarmanna léku á bilinu 60 til 300. Interfax-fréttastofan hafði í gærkvöld eftir aðstoðarmanni héraðsstjóra Kabardino-Balkaria að 59 skæruliðar hefðu verið drepnir og 17 handteknir. Nalchik er um 100 km norð-vestur af bænum Beslan í Ingúsétíu, þar sem téténskir skæruliðar tóku hundruð skólabarna og foreldra þeirra í gíslingu í fyrra, en sú gíslataka endaði með ósköpum. Á vefsíðunni Kavkaz-Center, sem álitin er málpípa uppreisnarmanna sem fylgja téténska skæruliðaforingjanum Shamil Basajev að málum, kom fram að yfirlýsing hefði borist frá "Kákasus-fylkingunni" þar sem ábyrgð var lýst á árásinni. Þar segði að árásarmennirnir væru liðsmenn vopnaðra uppreisnarsveita Téténa, en til þeirra teldist líka Yarmuk, hópur herskárra múslima með bækistöðvar í Kabardino-Balkaria. Samræmdar árásir á bækistöðvar lögreglu eins og gerðar voru í gær minna mjög á umsátur uppreisnarmanna um lögreglustöðvar í Ingúsétíu í fyrra, en í þeim féllu 92 manns og vopnageymslur lögreglu voru tæmdar. Basajev lýsti ábyrgð á þeim árásum og gíslatökunni í Beslan.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira