Steinmeier í þýsku utanríkismálin 23. október 2005 15:04
Frank Walter Steinmeier, starfsmannastjóri Gerhards Schröder fráfarandi kanslara, verður næsti utanríkisráðherra Þýskalands. Þetta kom í ljós er forusta þýska jafnaðarmannaflokksins SPD staðfesti hverjir úr þeirra röðum tækju sæti í væntanlegri samsteypustjórn með kristilegum demókrötum. Franz Müntefering, formaður SPD, verður varakanslari og ráðherra atvinnumála. Peer Steinbrück, fyrrverandi forsætisráðherra sambandslandsins Nordrhein-Westfalen, verður fjármálaráðherra. Alls munu átta af fjórtán fagráðherrum stjórnarinnar verða jafnaðarmenn. Þrír ráðherrar úr fráfarandi stjórn - dómsmálaráðherrann Brigitte Zypries, heilbrigðisráðherrann Ulla Schmidt og þróunarmálaráðherrann Heidemarie Wieczorek-Zeul - sitja áfram. Steinmeier hefur verið áhrifamikill en þó frekar óáberandi samherji Schröders allt frá því þegar kanslarinn var forsætisráðherra Neðra-Saxlands. Þegar Schröder varð kanslari árið 1998 fylgdi Steinmeier honum þangað sem ráðgjafi og tók við sem yfirmaður kanslaraskrifstofunnar árið 1999, er Bodo Hombach vék úr því embætti. Að svo náinn samstarfsmaður Schröders skyldi veljast í utanríkisráðherraembættið vekur spurningar um hversu mikla möguleika Angela Merkel, leiðtogi kristilegra, muni sem kanslari hafa á því að breyta um kúrs í utanríkismálunum. Merkel hefur heitið því að stórbæta samskiptin við Bandaríkjastjórn, en þau hafa verið erfið frá því að Schröder ákvað að styðja ekki innrásina í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira