Aron Pálmi áfram hjá vinum 5. október 2005 00:01
Aron Pálmi Ágústsson fær að dvelja áfram hjá vinafólki í Tyler í Texas þar til rafmagn kemst á að nýju í Beaumont eftir fellibylinn Rítu. Hann getur því að óbreyttu snúið að nýju til síns heima þar sem hann á að vera undir eftirliti næstu tvö árin. Greint var frá því fyrr í dag að Aron Pálmi yrði ekki náðaður og þyrfti að öllum líkindum að dvelja tímabundið í fangelsi í Texas. Það jafngilti dauðadómi að mati Sæmundar Pálssonar, eins úr stuðningsmannahópi Arons. Farið var fram á að íslensk stjórnvöld leituðu liðsinnis forseta Bandaríkjanna. Fylkisþing Texasríkis samþykkti í ágúst að Aron Pálmi yrði náðaður og gengur því ríkisstjórinn, Rick Perry, þvert á vilja þingsins með ákvörðun sinni um að hafna náðunarbeiðninni. Forsvarsmenn RJF-hópsins sem unnið hafa að lausn Arons Pálma vilja að íslensk stjórnvöld beini spjótum sínum að Bandaríkjaforseta en ekki fylkisstjóranum við lausn málsins. Garðar Sverrisson, einn af stuðningsmönnum Arons Pálma, sagði að vitaskuld ættu íslensk stjórnvöld að beita sér í málinu. Honum væri ekki kunnugt um það að fram hefðu komið formleg mótmæli frá íslenskum stjórnvöldum, ekki hefði verið gert annað en að skríða á fjórum fótum í málinu. Samkvæmt upplýsingum frá sendiráði Íslands í Washington getur Aron Pálmi ekki snúið strax til Beaumont þar sem þar er allt rafmagnslaust eftir fellibylinn Rítu. Aron Pálmi reyndi sjálfur að reyna að finna húsnæði en ef það hefði ekki telist hefði hann þurft hann að dvelja í fangelsi í Texas þar til hann hefði getað snúið aftur heim til sín. Sæmundur Pálsson taldi í dag að það jafngilti dauðadómi fyrir Aron Pálma að dvelja í fangelsi. Hann benti á að barnaníðingar væru ekki teknir neinum vettlingatökum í bandarískum fangelsum eins og margar kvikmyndir og dæmi sanna. Litið yrði á Aron Pálma sem barnaníðing en hann sé það illa farin eftir allt málið að hann sæi það ekki að Aron Pálmi lifði það af. Í bréfi sem Aron Pálmi sendi frá sér í morgun kom fram að hann væri mjög niðurdreginn vegna ákvörðunar ríkisstjóra Texas. Hann sagðist þó vongóður um að ákvörðuninni yrði hnekkt og hann vonast eftir aðstoð íslenskra stjórnvalda. Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar hefur farið fram á utandagskrárumræður á Alþingi vegna máls Arons Pálma. Fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar reyndi ítrekað að ná sambandi við Aron Pálma í dag, en án árangurs.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Fleiri fréttir Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Sjá meira