Innlent

Gleðigangan að leggja af stað

Nú eru hátíðahöld Hinsegin daga í Reykjavík um það bil að ná hámarki sínu því klukkan þrjú hóf gleðigangan svokallaða ferð sína niður Laugaveginn og niður á Lækjargötu. Búast má við mikilli litadýrð og húllumhæi enda hafa skipulögð atriði í göngunni aldrei verið fleiri, eða alls 28. Áætlað er að það taki skrúðgönguna um klukkutíma og tíu mínútur að komast niður á Lækjargötu, en þar verða enn frekari hátíðahöld. Árni Magnússon félagsmálaráðherra flytur ávarp og þá verða tónleikar í götunni þar sem Rut og Vigdís, hommaelskandi mæður frá Noregi, troða meðal annars upp en þær slógu svo sannarlega í gegn á opnunarhátíð Hinsegin daga í gærkvöldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×