Erlent

Yfir þúsund hafa látist

Ráðamenn í suðvesturhluta Indlands segja að yfir þúsund hafi látist í flóðum og aurskriðum á svæðinu undanfarnar vikur. Monsúnrigningarnar geisa nú og hefur úrkoma mest mælst 940 millimetrar á einum sólarhring, með þeim afleiðingum að götur borga og bæja hafa breyst í beljandi stórfljót og engi í stöðuvötn. Hundruð þúsunda hafa misst heimili sín á svæðinu og neyðarástand ríkir víða. Uppskera hefur skemmst og nautgripir, sem eru undirstaða afkomu fjölmargra íbúa þessara fátæku héraða, hafa drepist í stórum stíl. Skemmdir á uppskeru eru metnar á tæpa níu milljarða íslenskra króna og ljóst að heildarskemmdir hlaupa á tugum ef ekki hundruðum milljarða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×