Erlent

NATO tekur við að ári

Alþjóðleg hersveit undir stjórn NATO verður reiðubúin að taka við stjórn öryggismála í Afganistan á næsta ári, að sögn Gerhard Back hershöfðingja. Við það munu margir þeirra 17.600 bandarísku hermanna sem eru í landinu verða fluttir til annarra starfa. Bandarísk stjórnvöld hafa lengi hvatt NATO til að fjölga hermönnum sínum í Afganistan og að þeir verði í meiri mæli fluttir til suður- og austurhluta landsins, þar sem átökin hafa verið mest. Enn er óljóst hvort Bandaríkjamenn muni halda sérstakri hersveit í Afganistan til að halda áfram leitinni að Osama bin Laden, sem talinn er í felum við landamæri Pakistan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×