Erlent

Bush hrósar Víetnömum

Phan Van Khai, forsætisráðherra Víetnams, hitti George Bush í Hvíta húsinu í gær. Leiðtogarnir ræddu um áhuga Víetnams á aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO, viðskipti og mannréttindamál. Bush hrósaði Víetnömum fyrir góðan árangur í efnahagsmálum, aukið trúfrelsi og áframhaldandi leit að líkum bandarískra hermanna sem féllu í Víetnamstríðinu. Nokkur hundruð manns mótmæltu mannréttindabrotum kommúnistastjórnarinnar í Víetnam fyrir utan Hvíta húsið meðan fundur þeirra fór fram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×