Stirt andrúmsloft á leiðtogafundi 21. júní 2005 00:01
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, hittust í Jerúsalem í gær. Á sama tíma herti ísraelski herinn aðgerðir sínar gegn herskáum Palestínumönnum og handtók yfir fimmtíu grunaða uppreisnarmenn. Fundur þeirra Sharon og Abbas er sá fyrsti síðan vopnahléi var lýst yfir í febrúarbyrjun og var efni fundarins samræming aðgerða fyrir brottflutning landnema frá Gaza-ströndinni síðar í sumar. Fundurinn stóð yfir í rúmar tvær klukkustundir og að sögn ísraelskrar sjónvarpsstöðvar var andrúmsloftið þvingað. Engar yfirlýsingar voru gefnar út eftir fundinn. Ísraelskir embættismenn sögðu í samtölum við fjölmiðla að Sharon hefði sagt Abbas að Palestínumönnum yrðu senn fengin yfirráð yfir bæjunum Qalqiliya og Bethlehem innan tveggja vikna svo fremi sem þeir tækju uppreisnarmenn fastari tökum. Auk þess væru þeir til viðræðu um að láta fleiri palestínska fanga lausa og leyfa útlögum að snúa aftur til síns heima. Síðan leiðtogarnir hittust í Sharm el-Shaik í febrúar í febrúar hafa Ísraelar verið gagnrýndir fyrir að skirrast við að láta lausa fanga, taka niður vegatálma og færa Palestínumönnum yfirráð yfir fleiri bæjum eins og vopnahléssamkomulagið kvað á um. Þeir segja á móti að Palestínumenn leyfi uppreisnarmönnum að leika lausum hala. Síðustu daga hefur ólga vaxið í landinu. Eftir aðgerðir samtakanna Heilagt stríð síðustu daga sem hafa kostað nokkur mannslíf handtóku ísraelskar hersveitir 52 meðlimi þeirra í gærmorgun. Þetta er stefnubreyting hjá Ísraelum því fram að þessu hafa þeir einbeitt sér að því að handtaka þá sem beina aðild eiga að árásum. Þrátt fyrir handtökurnar hélt ofbeldið áfram þegar vopnaðir menn á Vesturbakkanum réðust á ísraelska bifreið og skutu einn farþegann. Um svipað leyti myrtu ísraelskir hermenn Palestínumann sem gert hafði gat á girðinguna á landamærum Ísraels og Gaza.
Erlent Fréttir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira