Sport

Mourning gefur launin sín

Alonzo Mourning, miðherji Miami Heat í NBA deildinni, hefur ákveðið að gefa árslaun sín hjá félaginu til góðgerðamála. Þorri peninganna mun fara til nýrnaveikra barna, en Mourining er sjálfur nýrnaþegi. Mourning gekk til liðs við lið Miami í vetur eftir að hafa farið frá liði New Jersey Nets og ákvað hann að gefa þann hluta árslauna sinna sem hann vann sér inn hjá Miami, sem er um það bil 300 þúsund dollarar, til veikra barna. Peningarnir munu fara í matvæli og menntun. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Mourning er rausnarlegur við þá sem minna mega sín, en hann hefur ólíkt mörgum leikmönnum í deildinni, ekki gleymt því hvaðan hann kemur, því hann ólst sjálfur upp við frekar þröngan kost.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×