Erlent

Dýrasta hús Bretlands til sölu

Dýrasta hús Bretlands er til sölu. Húsið heitir Updown Court og er rétt utan við London í nágrenni við heimili Elísabetar Englandsdrottningar og Elton John. Húsið er 103 herbergja, með hesthúsi, kvikmyndasal, keilubraut, tennisvelli, fimm sundlaugum, þyrlupalli, bílskúr sem rúmar átta stóra fólksbíla og upphitaða innkeyrslu úr marmara. Fasteignasalinn sem sér um sölu hússins segir að nokkrir áhugasamir hafi þegar haft samband og skoðað húseignina. Áætlað verð hússins er rúmlega átta milljarðar íslenskra króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×