Erlent

Öflugur jarðskjálfti við Indónesíu

Öflugur jarðskjálfti varð austur af Indónesíu í dag. Engar fréttir hafa borist að slysum né skemmdum samfara skjálftanum. Upplýsingar frá veður- og jarðfræðistofnun í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, herma að upptök skjálftans hafi orðið 320 kílómetra undir sjávarmáli sem er of djúpt til að koma af stað flóðbylgju.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×