Erlent

Bjargað eftir viku úr rústum

Fertugum manni var bjargað úr rústum heimilis síns í Kerman-héraði í suðausturhluta Írans viku eftir að jarðskjálfti skók héraðið. Samkvæmt fréttastofunni IRNA bjó maðurinn einn og fannst hann þegar íbúar í bænum hans voru að hreinsa til eftir hamfarirnar en ekki er vitað hvernig honum tókst að lifa í svo langan tíma undir rústunum. Alls léstust 612 manns og yfir 1400 slösuðust í skjálftanum sem var upp á 6,4 á Richter.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×