Erlent

Johnson-Sirleaf með forystu

Ellen Johnson-Sirleaf
Ellen Johnson-Sirleaf

Útlit er fyrir að Ellen Johnson-Sirleaf verði næsti forseti Líberíu. Hún lýsti yfir sigri í gærkvöld þegar um 91 prósent atkvæða höfðu verið talin. Þá hafði hún fengið um 59 prósent atkvæða en andstæðingur hennar, knattspyrnukappinn George Weah, 41 prósent.

Weah hefur sakað kjörstjórn landsins um svindl en eftirlitsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna segja kosningarnar á þriðjudag hafa farið vel fram. Endanlegra niðurstaðna er ekki að vænta fyrr en eftir nokkra daga en ef fram fer sem horfir verður Ellen Johnson-Sirleaf fyrsta konan til að gegna embætti þjóðarleiðtoga í Afríku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×