Svíi handtekinn í Sarajevó vegna hryðjuverkaógnar 28. október 2005 10:15 Amalíuborg í Kaupmannahöfn.
Fjórir múslimar sem voru handteknir í Kaupmannahöfn í gær eru grunaðir um að hafa ætlað að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu, að öllum líkindum i Danmörku. Þá segja sænskir fjölmiðlar að átján ára Svíi hafi verið handtekinn í Sarajevó í síðustu viku, grunaður um að hafa ætlað að gera þar sjálfsmorðsárás. Mennirnir fjórir eru á aldrinum sextán til tuttugu og ára, og hafa allir búið í Danmörku frá unga aldri, en aðeins einn þeirra er með ríkisborgararétt. Tuttugu til viðbótar voru handteknir í rassíu dönsku lögreglunnar í gær, en þeim var öllum sleppt að loknum yfirheyrslum. Fjórmenningarnir hafa hins vegar þegar verið dæmdir í þriggja vikna gæsluvarðhald, samkvæmt ákvæði í dösnkum hryðjuverkalögum. Þetta er aðeins í annað sinn sem lögregla í Danmörku heldur mönnum í gæsluvarðhaldi samkvæmt lögunum, sem tóku gildi árið 2002. Jorgen Bro, yfirmaður í dönsku lögreglunni, segir að ekki liggi fyrir hvar eða hvenær átti að gera árásina, en segir að fyrir liggi að mennirnir fjórir hafi verið búnir að skipuleggja árás í Evrópu á næstu vikum. Hann vill ekki staðfesta að árásin hafi átt að eiga sér stað í Danmörku, en útilokar það heldur ekki. Danska lögreglan komast á snoðir um málið þegar kollegar þeirra í Sarajevó handtóku þrjá menn fyrir rúmri viku, sem einnig ætluðu að fremja hryðjuverk. Einn þeirra er átján ára Svíi að sögn sænska blaðsins Expressen. Í blaðinu í dag segir að sænski unglingurinn hafi ætlað sér að gera sjálfsmorðsárás á breska eða bandaríska sendiráðið í Sarajevó. Þeir tengjast fjórmenningunum í Danmörku og hafa verið í samskiptum við þá. Í fórum þeirra var fannst mikið magn skotvopna og sprengiefna. Í rassíu lögreglunnar í Kaupmannahöfn í gær var lagt hald á tölvur, farsíma og tölvudiska og bækur með eftir múslimska öfgamenn. Þá fundust einnig 200 þúsund danskar krónur, eða rétt rúmar tvær milljónir íslenskra króna, í reiðufé á heimili mannanna. Að sögn dablaðsins Jyllands-Posten er aðgerðum lögreglunnar vegna málsins ekki að fullu lokið og þar er sagt að búast megi við að fleiri verði handteknir á næstu dögum.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira