Líkt og risastór hönd væri að hrista húsið 25. október 2005 05:30 Allt á floti. Íbúar Havana urðu margir hverjir að ösla vatnselginn upp í axlir. Björgunarsveitir í kafarabúningum sóttu um 250 strandaglópa af heimilum sínum. MYND/AP
Fellibylurinn Wilma fór yfir Flórídaskaga og Kúbu í gær og varð umtalsvert tjón af völdum veðursins. Sunnar við Mexíkóflóa var hitabeltisstormurinn Alfa á ferðinni og varð í það minnsta átta manns að fjörtjóni. "Ég hef hvorki fyrr né síðar upplifað annan eins veðurofsa, ég er nú 63 ára og hef oft verið í óveðri á Íslandi. Þeir voru eins og þytur í laufi í samanburði við þetta," sagði Ingvi Hrafn Jónsson fréttamaður. Ingvi var í bænum Hollywood, rétt sunnan við Fort Lauderdale, og lenti bókstaflega undir auga stormsins. "Það var líkt og risastór hendi væri að reyna að hrista húsið af grunninum. Myndir duttu af veggjunum og miklir brestir heyrðust í þakinu." Vindhraði Wilmu var vel yfir fimmtíu metrar á sekúndu enda olli bylurinn umtalsverðu tjóni. Einn maður lést í úthverfi Fort Lauderdale þegar tré féll á hann. Rúður brotnuðu í skýjakljúfum borgarinnar, raflínur slitnuðu og vatnsleiðslur rofnuðu. "Það er ótrúlegt að horfa hérna yfir hverfið. Það er eins og risastór jarðýta hafi farið yfir og ýtt um koll trjánum sem eru hérna," sagði Ingvi Hrafn um ástandið í Hollywood. Key West eyjaklasinn sem er suður af Flórída fór nánast á kaf í hamförunum og í Havana, höfuðborg Kúbu, festist fjöldi fólks í híbýlum sínum sem voru umlukin vatni. Sunnar við Mexíkóflóann lét hitabeltisstormurinn Alfa til sín taka. Á Haítí fórust í það minnsta átta manns í veðurofsanum. 23 til viðbótar er saknað eftir að aurskriðum og vatnsflóð hrifu hús og bifreiðar með sér. Þrír menn eru ófundnir í Dóminíkanska lýðveldinu eftir óveðrið þar. Wilma heldur nú sem leið liggur norður eftir strönd Bandaríkjanna en stormurinn er svo langt úti á hafi að áhrif hans eru óveruleg. Alfa mjakaði sér jafnframt út á Atlantshafið en er nú einungis meðaldjúp lægð. Alfa er 22. hitabeltisstormurinn á Atlantshafinu þetta árið en um slíkan fjölda eru engin dæmi.
Erlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira