Stafirnir í stafrófinu búnir 24. október 2005 05:00 Eftir storminn Íbúar Cancun í Mexíkó reyndu að ná áttum í gær. Ræningjar hafa hins vegar sætt lagi og stolið flestu sem hönd á festir.fréttablaðið/AP
Fellibylurinn Wilma yfirgaf loks Mexíkó í gær og hélt sem leið lá í átt til Flórídaríkis. Aldrei hafa jafn margir fellibyljir geisað á þessum slóðum á einu ári. Wilma hefur gert mikinn óskunda í löndunum við Mexíkóflóa undanfarna daga. Um helgina hélt stormurinn sig við Yucatan-skaga í Mexíkó og varð þremur mönnum að fjörtjóni. Eyðileggingin er mikil í bæjum á borð við Cancun og til að bæta gráu ofan á svart hafa ræningjar látið greipar þar sópa. Í gær hélt bylurinn yfir flóann og tók hann land í Flórída í nótt. Þá var reyndar reiknað með að veðurhæðin hefði minnkað nokkuð en í gær flokkuðu veðurfræðingar Wilmu sem 2. gráðu fellibyl með um 44 metra vindhraða á sekúndu. Engu að síður var 160.000 íbúum Flórída gert að rýma heimili sín um helgina. Wilma er 22. Atlantshafsfellibylurinn sem myndast á þessu ári en engin dæmi eru um slíkan fjölda. Þegar enn ein lægðin sótti í sig veðrið á laugardaginn úti fyrir ströndum Dóminíkanska lýðveldisins urðu veðurfræðingar að nefna storminn Alfa, eftir fyrsta staf gríska stafrófsins, þar sem hefðbundnir nafnalistar voru uppurnir.
Erlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira