Florida Keys á kaf? 24. október 2005 11:31
Óttast er að Flórída Keys eyjaklasinn fari á kaf þegar fellibylurinn Wilma fer þar yfir síðar í dag eða á morgun. Um allt Flórída fylki hefur verið varað við hvirfilbyljum síðan í nótt.Miðja Wilmu er nú við suðurströnd Flórída. Hún náði í nótt þriðja stigi á nýjan leik og hefur enn verið að eflast í morgun. Wilma er talsvert öflugri en fellibylurinn Charley, sem reið yfir Flórída í fyrra og olli þar miklu tjóni.Arnar Vignisson, sem býr í Indialantik á Austurströnd Flórída segir að áhrifa Wilmu gæti verulega um allt fylkið, líka á austurströndinni, þó að ekki sé búist við miðju fellibylsins þar. Buið sé að loka skólum og fyrirtækjum víða og fólk beðið að halda sig heima við. Arnar segir að fólk hafi verið frekar óvenju þögult í morgun, en þó virðist fæstir beinlínis óttaslegnir. Hann segir að fólk á austurströndinni sé fyrst og fremst hrætt við hvirfilbyli.Á Florida Keys eyjaklasanum óttast yfirvöld hið versta, enda er þar mjög, láglent.Meirihluti íbúanna á Florida Keys hefur hunsað ítrekaðar viðvaranir yfirvalda frá því í síðustu viku og langflestir eru enn heima við.Öllum áttatíu þúsund íbúunum var fyrir helgina ráðlagt að hafa sig á brott, en í morgun höfðu aðeins um sex þúsund manns farið. Sérfræðingar spá því að vatnshæðin nái allt að fjórum til fimm metrum á Florida Keys. Hæð eyjanna er hvergi meiri en rétt rúmir fimm metrar, svo að ef verstu spádómar rætast fer þar allt á kaf.Um helgina lagði Wilma þúsundir heimila í rúst í Mexíkó og minnst sjö manns létust þar af hennar völdum. Á Kúbu urðu sex hundruð þúsund manns að yfirgefa heimili sín í strandhéruðum. Þá hafast tugþúsundir manna við í neyðarskýlum á svæðunum sem Wilma hefur farið yfir.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira