117 taldir af eftir flugslys 24. október 2005 03:00 Boeing 737 Flugvél sömu tegundar í eigu Bellview Airlines fórst í fyrrakvöld. Fréttablaðið/AP
Nígería Boeing-þota í eigu nígerísks flugfélags fórst í fyrrakvöld með 117 manns skömmu eftir flugtak frá borginni Lagos. Afar misvísandi fréttir bárust af slysinu framan af gærdeginum. Þotan, sem var af tegundinni Boeing 737 og var í eigu nígeríska flugfélagsins Bellview Airlines, var á leið frá Lagos, stærstu borg landsins, til höfuðborgarinnar Abuja. Skömmu eftir flugtak í fyrrakvöld hvarf vélin af ratsjá og tóku þá þegar grunsemdir að vakna um að eitthvað hefði komið fyrir. Framan af gærdeginum voru fregnir afar óljósar um hvar vélin hefði farist og hversu margir hefðu látist í slysinu. Í fyrstu var talið að þotan hefði brotlent nærri Kishi í Oyo-héraði, 400 kílómetra frá Lagos, og fimmtíu farþegar hefðu komist lífs af. Þær fregnir voru síðar dregnar til baka þegar sjónvarpsfréttamenn sögðust hafa fundið flakið við þorpið Lissa í Ogun-héraði, 250 kílómetra frá Lagos. BBC hefur eftir starfsmanni Rauða krossins á vettvangi að flakið hafi staðið í ljósum logum og útilokað virtist að nokkur hefði lifað slysið af. "Flugvélin var gjörsamlega í rúst, flakið hafði dreifst út um allt." Alls voru 117 um borð, 111 farþegar auk sex manna áhafnar. Fljótlega eftir að tíðindin spurðust út fylltist flugvöllurinn í Lagos af fólki í leit að upplýsingum um afdrif ástvina sinna. Þar voru jafnframt fulltrúar sendiráða sem vildu ganga úr skugga um hvort landar þeirra hefðu verið innanborðs. Nígerískir embættismenn sögðust í gær ekki hafa neinar tilgátur um hver orsök slyssins væri þar sem flugritar vélarinnar væru ófundnir. Aðspurðir kváðust þeir ekki geta svarað hvort hryðjuverk hefði verið framið. Bellview Airlines þykir eitt af öruggustu flugfélögum Nígeríu en auðugir kaupsýslumenn og erlendir erindrekar eru á meðal helstu viðskiptavina þess. Engin flugslys hafa orðið í ríflega tíu ára sögu þess. Flugöryggi er aftur á móti afar ábótavant í Nígeríu, og er ekki lengra en mánuður síðan þota flugfélagsins Air France ók inn í kúahjörð á flugbrautinni í Port Harcourt þegar hún kom inn til lendingar en enginn slasaðist. Árið 2002 fórst flugvél nærri borginni Kano og með henni 150 manns.
Erlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk við Fairford Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira