Banvæn fuglaflensa í Rúmeníu 15. október 2005 00:01
Landbúnaðarráðuneyti Rúmeníu tilkynnti í gær að rannsóknir hefðu staðfest að fuglaflensuveira sem fundist hefur í fuglum í landinu sé af H5N1 afbrigðinu, sem getur borist í menn. Fuglarnir voru villtir og fundust dauðir við árósa Dónár, en í síðustu viku fannst þetta afbrigði veirunnar einnig í alifuglum í Tyrklandi. Neyðarfundur var haldinn í gær á vegum yfirdýralæknisembættis Rúmeníu, landbúnaðarstofnana og innanríkisráðuneytisins. Landshlutinn þar sem fuglaveiran fannst hefur verið settur í einangrun, og eru allar bifreiðar sem ferðast inn í eða út úr svæðinu sótthreinsaðar. Þó þetta afbrigði veirunnar sé afar smitandi meðal fugla er erfitt fyrir fólk að sýkjast af veirunni. Fólkið sem látist hefur úr þessu afbriðgi veirunnar hefur nær allt verið Asískir alifuglabændur, sem smitast hefur af því að meðhöndla sýkta fugla. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur skipað aðildarríkjum sínum að herða á aðgerðum gegn fuglaflensunni, en varar á sama tíma við ástæðulausum ótta þar sem veiran hefur enn ekki stökkbreyst. Stjórnvöld margra Evrópulanda velta því nú fyrir sér hvort banna skuli kjúklingabændum að hleypa fuglinum út, og hefur landbúnaðarráðherra Rúmeníu beðið alifuglabændur í landinu um að halda fuglum sínum inni. Skotveiðar hafa verið bannaðar á þeim svæðum þar sem fuglaflensan hefur fundist í Tyrklandi og í Rúmeníu, og jafnframt hefur Evrópusambandið bannað innflutning alifugla og eggja frá þessum tveimur löndum. Talið er að farfuglar beri veiruna, og óttast er að hún muni finnast víðar á næstu vikum. Sérstaklega er talið líklegt að hún muni finnast vestar í Evrópu, í Mið-Austurlöndum og í Afríku, en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin minnir á að hættan á að fólk smitist af fuglaflensuveiru er afar lítil
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira