Erlent

Telja 10 milljónir hafa kosið

Kjörstjórn í Írak telur að um tíu milljónir manna hafi kosið í þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að stjórrnarskrá landsins í dag en það eru um tveir þriðju hluta manna sem voru á kjörskrá. Endaleg kjörsókn liggur ekki fyrir en Reuters-fréttastofan hefur eftir einum kjörstjórnarmanna, Farid Ayar, að hann hafi vonast eftir um 11 milljónum á kjörstað en líklega náist sú tala ekki, m.a. vegna þess að föstumánuðurinn Ramadan stendur yfir. 15,5 milljónir manna voru á kjörskrá og ef 10 milljónir hafa mætt á kjörstað verður kjörsóknin um 65 prósent sem er sjö prósentustigum meira en í þingkosningunum í landinu í upphafi árs. Lítið virðist hafa verið um árásir uppreisnarmanna á kjördag í flestum héruðum landsins en þó kom til átaka í Anbar-héraði milli hermanna og uppreisnarmanna og þar var ekki hægt að opna alla kjörstaði. Þá bárust fréttir af því að þrír írakskir hermenn hefðu látist þegar vegsprengja sprakk skammt frá Bagdad í dag og þá hafa nokkrir óbreyttir borgarar særst í árásum víðs vegar um landið. Ekki er búist við úrslitum í þjóðaratkvæðagreiðslunni fyrr en eftir nokkra daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×