Búist við átakafundi í Ulsan 20. júní 2005 00:01
Búist er við átökum á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem hófst í Ulsan í Suður-Kóreu í morgun. Hvalveiðisinnar gerðu sér vonir um að ná í gegn breytingum sem gerðu það að verkum að takmarkaðar hvalveiðar yrðu aftur leyfðar, en slegið var á þær væntingar strax í upphafi fundar. Frá árinu 1986 hefur Alþjóðahvalveiðiráðið lagt blátt bann við hvalveiðum en með tilkomu fjögurra þróunarríkja í ráðið glæddust vonir hvalveiðsinna um að ná fram einföldum meirihluta sem knúið gæti fram breytingar á ríkjandi stefnu. Litlar vonir eru þó til að hvalveiðibannið verði alfarið fellt úr gildi en til þess þyrfti aukinn meirihluta. Umræða um hið eiginlega afnám hvalveiðibannsins hefst á morgun en ársfundurinn stendur fram á föstudag. Í morgun lögðu Japanar það til að atkvæðagreiðslur innan ráðsins yrðu leynilegar. Það myndi meðal annars koma í veg fyrir umhverfisverndarsinnar beittu þær þjóðir sem hlynntar eru hvalveiðum þvingunum. Tillögunni var hins vegar hafnað með 30u atkvæðum gegn 27 sem gefur til kynna ríkjandi valdahlutföll í ráðinu. Ekki vakti yfirlýsing Japana um að þeir ætluðu að veiði 850 hrefnur árlega meiri lukku en það er meira en tvöfaldur fjöldi þeirra dýra sem þeir hafa veitt undanfarin ár. Fulltrúar Nýja-Sjálands og Ástralíu, landa sem byggt hafa upp öflugan iðnað í kringum hvalaskoðun, brugðust afar illa við og sagði umhverfisráðherra Ástralíu, Ian Campbell, áætlanirnar skammarlegar. Noregur er eina landið sem stundar hvalveiðar í þeim tilgangi einum að selja kjötið til manneldis á meðan Japanar og Íslendingar veiða hrefnur undir yfirskini vísindarannsókna. Óánægja með hvalveiðibannið fer vaxandi í Japan og þær ræddir heyrast úr stjórnkerfinu að þjóðin eigi að segja sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu dragi ekki til tíðinda á fundinum.
Erlent Fréttir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira