Erlent

Harðneitar helförinni

Réttarhöld fara nú fram yfir þýska kynþáttahataranum Ernst Zundel en hann hefur þráfaldlega neitað því að helförin gegn Gyðingum hafi átt sér stað á sínum tíma. Slíkt er bannað í Þýskalandi og því situr hann nú í gæsluvarðhaldi í Mannheim á meðan málflutningur stendur yfir. Zundel bjó í Kanada í rúma fjóra áratugi en var nýlega framseldur til Þýskalands. Hann hefur síðan á áttunda áratugnum gefið út áróðursrit til stuðnings nasistum þar sem helförinni er afneitað. Hægt er að nálgast heimasíðu ritsins í Þýskalandi og því óskuðu þarlend yfirvöld eftir framsali.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×