Erlent

Tung segir af sér

Tung Chee-hwa, æðsti fulltrúi kínverskra stjórnvalda í Hong Kong, tilkynnti í gær að hann hygðist segja af sér embætti vegna heilsubrests. Flestir telja þó að ástæða afsagnarinnar sé trúnaðarbrestur við ráðamenn í Beijing. Tung hefur stýrt Hong Kong frá árinu 1997 þegar borgin komst í hendur Kínverja á ný. Hann hefur alltaf verið óvinsæll hjá borgarbúum, sem telja að hann hafi ekki staðið við gefin loforð um lýðræðisumbætur. Hann þótti standa sig illa þegar bráðalungnabólgan geisaði vorið 2003 með tilheyrandi efnahagskreppu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×