Fangar leynilega í haldi 3. nóvember 2005 05:45 Bush og Goss. George W. Bush Bandaríkjaforseti (í miðju) og Porter Goss, yfirmaður CIA, tala við blaðamenn í anddyri höfuðstöðva leyniþjónustunnar í Langley í Virginíu.
Bandaríska leyniþjónustan CIA hefur falið marga mikilvægustu fanga "stríðsins gegn hryðjuverkum" í gömlu fangelsi í Austur-Evrópu og stundað þar yfirheyrslur yfir þeim, að því er dagblaðið The Washington Post hafði í gær eftir erindrekum Bandaríkjastjórnar og erlendra ríkja sem til málsins þekkja. Hinar leynilegu fangabúðir eru hluti af leynilegu fangelsakerfi sem CIA kom á fót fyrir um fjórum árum, í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september 2001. Kerfið hefur á þessu tímabili teygt anga sína til að minnsta kosti átta landa. Þar á meðal kváðu vera Taíland, Afganistan og nokkur fyrrverandi austantjaldslönd. Þessar fullyrðingar byggir Washington Post á frásögnum fyrrverandi og núverandi leyniþjónustumanna og stjórnarerindreka frá Bandaríkjunum og löndum í þremur heimsálfum. Að sögn Washington Post hvílir mikil leynd yfir tilveru þessara "svörtu staða", eins og þeir eru nefndir, og vita aðeins fáeinir æðstu embættismenn í Bandaríkjunum og viðkomandi löndum um staðsetningu þeirra og starfsemi innan veggja þar. Blaðið virðist hafa nöfn viðkomandi landa undir höndum en birtir þau ekki að kröfu háttsettra fulltrúa Bandaríkjastjórnar. Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur birt margar skýrslur og vitnisburði um aðstæður og aðferðir sem beitt er í fangelsum hersins, einkum og sér í lagi eftir hneykslið vegna fangamisþyrminga í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad og mikillar og gagnrýninnar fjölmiðlaumfjöllunar um fangabúðirnar í Guantanamo á Kúbu. Hins vegar hefur CIA hingað til ekki einu sinni gengist við tilvist hinna svonefndu "svörtu staða". Það kváðu stjórnendur þar á bæ forðast eins og heitan eldinn vegna ótta við að bandarískum yfirvöldum verði stefnt fyrir rétt fyrir erlendum dómstólum og hættunnar á pólitískri fordæmingu bæði heima fyrir og erlendis. Eins og fram er komið hafa þó nokkrar flugvélar, sem í Danmörku er talið að annist fangaflutninga fyrir CIA, haft viðkomu hér á landi síðustu misseri. Nokkrar þessara véla hafa verið á leið til eða frá Austur-Evrópu. Ein slík flugvél fór frá Reykjavík til Búdapest í Ungverjalandi í síðasta mánuði.
Erlent Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Erlent Fleiri fréttir Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent