Erlent

Leggja til hert lögreglueftirlit

Í nýrri skýrslu stjórnskipaðrar nefndar um ráðstafanir til að efla hryðjuverkavarnir í Danmörku er lagt til að danska lögreglan fái rýmri heimildir til símahlerana og eftirlits með tölvupóstsamskiptum. Auk þess er lagt til að fjölga eftirlitsmyndavélum til að bæta vernd borgaranna fyrir hryðjuverkavánni.

Ráðleggingar nefndarinnar eru í 49 liðum. Auk ofannefndra er þar meðal annars lagt til að lögregla fái greiðari aðgang að farþegalistum flugfélaga og skráðum gögnum um einstaklinga hjá hinum ýmsu opinberu stofnunum. Danska forsætisráðuneytið bað um gerð skýrslunnar í ágúst síðastliðnum vegna áhyggna af því að hryðjuverkamenn gætu beint spjótum sínum að Danmörku eftir sprengjuárásirnar á jarðlestirnar í Lundúnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×