Sex farast í Cancun 23. október 2005 11:45
Mikil eyðilegging blasir við í Cancun í Mexíkó þar sem fellibylurinn Wilma gekk yfir um helgina. Minnst sex fórust í óveðrinu. Strandbærinn Cancun er umflotinn vatni. Fjöldi húsa, bæði þar og í bænum Playa del Carmen, hefur eyðilagst og hafa tré rifnað upp með rótum. Vatnsflaumurinn er gríðarlegur og er vatn á nokkrum hæðum sumra hótela meðfram ströndinni, þannig að ljóst er að skemmdir eru verulegar. Wilma telst nú vera þriðja stigs fellibylur, en var fjórða stigs bylur í gær. Þúsundir þeirra ferðamanna, sem ekki náðu að koma sér í burtu áður en óveðrið skall á, hafast nú við í neyðarskýlum og bíða þess að veðrið gangi niður. Yfirvöld í Mexíkó hafa sent mat og lyf til þeirra svæða sem urðu verst úti og áformar Vicente Fox, forseti landsins, að fara til Cancun í dag til að kíkja á skemmdirnar. Búist er við að Wilma komi að Flórída-keys eyjaklasanum og Kúbu á morgun og hefur neyðarástandi verið lýst yfir á báðum stöðum, auk þess sem bæði heimamenn og ferðamenn eru hvattir til að yfirgefa svæðin. Og á meðan Wilma gengur enn yfir, hefur enn ein hitabeltislægðin myndast í Karíbahafi, skammt frá Haítí og Dóminíska lýðveldinu, en veðurfræðingar telja að hún fari þar yfir og færi sig síðan nær Bahama-eyjum. Nú dugar hins vegar ekki lengur latneska stafrófið til, við að gefa hitabeltislægðunum karlamanns- og kvenmannsnöfn, því í fyrsta skipti frá því byrjað var að gefa þeim nöfn með stöfum frá A til W, verður að grípa til þess ráðs að nota gríska stafrófið og hefur lægðin við Haítí verið nefnd Alfa. Hún er 22. hitabeltislægðin á svæðinu í haust og hafa ekki fleiri lægðir myndast á eins skömmum tíma, frá því byrjað var að skrá þær fyrir 150 árum.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk við Fairford Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira