Erlent

Einn stunginn til bana

Einn maður var stunginn til bana í óeirðum sem blossuðu upp á milli afrískra og asískra ungmenna í Birmingham á Englandi í gærkvöldi. Lögreglumaður, sem reyndi að stilla til friðar, særðist alvarlega þegar skotið var á hann.

Óeirðirnar blossuðu upp í einu hverfa Birmingham-borgar, í kjölfar fundar sem boðað hafði verið til vegna meintrar nauðgunar á 14 ára gamlalli stúlku. Ungmennin gengu berserksgang, kveiktu í bílum og brutu rúður í nærliggjandi verslunum. Fjórir menn voru stungnir með hnífi, og einn þeirra, maður um tvíttugt, lést skömmu eftir að komið var með hann á sjúkrahús. Meira en hundrað lögreglumenn voru sendir á vettvang, en ekki vildi betur til en svo að ungmennin réðust á þá. Einn lögreglumaður, sem reyndi að stilla til friðar, særðist alvarlega þegar skotið var á hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×