Erlent

Abbas og Bush funda

Leiðtogi Palestínumanna, Mahmoud Abbas, kom til Washington í gær til að eiga fund með George Bush Bandaríkjaforseta en í enn eitt skiptið á að reyna að finna leiðir svo friður geti orðið á milli Ísraels og Palestínu. Abbas vill að Bush pressi á Ísraela til að hörfa frá öllum landnemasvæðum og að Palestínumenn fái að halda frjálsar kosningar. Þá ætlar Bush að biðja Abbas um að taka harðar á uppreisnarmönnum í landinu en sjálfsmorðsprengjuárásum hefur fjölgað að undanförnu. Bardagar milli Ísraela og Palestínumanna geisa nú sem fyrr og segja stjórnmálaskýrendur ólílegt að friður sé að nást nú frekar en fyrri daginn. Viðræður munu þó halda áfram þar til breyting verður á.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×