Efast um tengsl við al-Kaída 15. nóvember 2005 03:45 Gyrt sprengjubelti. Mörgum Jórdönum finnst grunsamlegt að al-Rishawi hafi ennþá verið með sprengjubeltið þegar hún var handtekin fjórum dögum eftir árásirnar.
Vart er talað um annað í Jórdaníu en Sajida Mubarak Atrous al-Rishawi sem játaði í sjónvarpsútsendingu að vera fjórði árásarmaðurinn í hryðjuverkunum í Amman í síðustu viku þar sem 57 manns létu lífið. Al-Rishawi varð heimsfræg að endemum á sunnudag þegar hún kom fram í sjónvarpi á sunnudag, gyrt sprengjubelti, og viðurkenndi að hafa mistekist að sprengja það í brúðkaupsveislu á Radisson SAS-hótelinu í síðustu viku. Eiginmanni hennar tókst hins vegar að sprengja sína sprengju. "Ég sat og horfði á þetta og ég gat ekki skilið hvernig hún gat sagt frá þessu af slíkri yfirvegun," sagði Adel Fathi í samtali við AP-fréttastofuna, en þrír ættingjar hans fórust í brúðkaupinu. "Úr hverju er þetta fólk?" bætti hann við beiskum rómi. Margir Jórdanar efast hins vegar um að al-Rishawi hafi nokkur tengsl við al-Kaída heldur sé jórdanska lögreglan einungis að láta líta út fyrir að hún sé að ná árangri. "Ég trúi þessu ekki. Of margar þversagnir eru í málinu og þetta kemur ekki heim og saman," sagði Mohammed al-Fakhiri, símasölumaður frá Amman. "Hún hefði byrjað á að losa sig við sprengjubeltið og því er afar ólíklegt að lögreglan hafi tekið hana fasta nokkrum dögum síðar með það vafið um sig."
Erlent Mest lesið Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Fleiri fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Sjá meira