Erlent

Járnfrúin bíður staðfestingar

Járnfrúin vinsæl. Johnson-Sirleaf heilsar börnum er hún hélt til messu í gær.
Járnfrúin vinsæl. Johnson-Sirleaf heilsar börnum er hún hélt til messu í gær.

Niðurstöður forsetakosninganna í Líberíu hafa ekki enn fengist staðfestar. Allt lítur þó út fyrir glæstan sigur Ellen Johnson-Sirleaf, fyrrverandi fjár­málaráðherra landsins, sem hefur fengið nafnbótina Járnfrúin.

George Weah hefur kært úrslit kosninganna og hefur ásakað Johnson-Sirleaf um svindl. Eftir að 99,3% atkvæða höfðu verið talin hafði Johnson-Sirleaf fengið 59,6% greiddra atkvæða á móti 40,4% Weah.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×