Útgöngubanni óvíða beitt í Frakklandi 10. nóvember 2005 06:00 Frá Evreux. Slökkviliðsmenn standa við búð í bænum Evreux í Mið-Frakklandi sem óeirðaseggir rústuðu og kveiktu í. Útgöngubann tók gildi í bæjarhlutanum La Madeleine í fyrrakvöld.
Óöldina í innflytjendahverfum franskra borga tók að dvína í gær. En þó voru yfir 600 bílar brenndir í fyrrinótt og skemmdarvargar létu útgöngubann ekki aftra sér frá því að rústa verslanir, dagblaðadreifingarmiðstöð og jarðlestarstöð. Neyðarástandið sem ríkisstjórnin lýsti yfir til að unnt væri að setja á útgöngubann í þeim sveitarfélögum þar sem óeirðaseggir hafa haft sig mest í frammi, tók gildi á miðnætti í fyrrakvöld. Neyðarástandið verður í gildi í tólf daga en þingið getur ákveðið að framlengja það. Um miðjan dag í gær höfðu þó aðeins fáein sveitarfélög og héraðsstjórnir ákveðið að beita þessari heimild, þar á meðal Amiens í Norður-Frakklandi, Orleans og Savigny-sur-Orge í miðhluta landsins, sem og Essonne-hérað suður af París. Bannið gilti þó aðeins um ungmenni 16 ára og yngri, sem ekki mega vera á ferli utandyra eftir myrkur nema í fylgd með fullorðnum. Nærri því þrír af hverjum fjórum svarenda í viðhorfskönnun sem gerð var á vegum dagblaðsins Le Parisien sögðust styðja setningu útgöngubanns. Að sögn lögreglu voru 617 bílar brenndir í fyrrinótt, sem er nærri helmingi færri en nóttina þar áður. Óeirðaseggir létu að sér kveða í alls 116 bæjum, en nóttina áður var tilkynnt um slíkt í 226 bæjum. 280 manns voru handteknir, en þar með var fjöldi handtekinna kominn í 1.830 alls frá því að óeirðaaldan hófst fyrir tveim vikum í kjölfar slysadauða tveggja unglinga af norður-afrískum uppruna. "Handtökurnar eru greinilega að sýna árangur," sagði Franck Louvrier, talsmaður innanríkisráðuneytisins. Betur mætti þó ef duga skyldi. Þeir sem brjóta útgöngubannið þar sem það er í gildi eiga allt að tveggja mánaða fangelsi yfir höfði sér og 3.750 evra sekt, andvirði 270.000 króna.
Erlent Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Sjá meira