Erlent

Sýrlendingar sýni samvinnu

Bandaríkin og Frakkar ætla að beita sér fyrir því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna krefji Sýrlendinga um fulla samvinnu í rannsókninni á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, ella sæta refsiaðgerðum.

"Tími sannra játninga er runninn upp fyrir Sýrlendinga," sagði John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, í gær. Í svipaðan streng tók Jean-Marc de La Sabliere, franskur starfsbróðir hans. Detlev Mehlis, formaður rannsóknarnefndar SÞ um morðið, flytur öryggisráðinu skýrslu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×