Erlent

Líkt og risastór hönd væri að hrista húsið

Allt á floti. Íbúar Havana urðu margir hverjir að ösla vatnselginn upp í axlir. Björgunarsveitir í kafarabúningum sóttu um 250 strandaglópa af heimilum sínum.
Allt á floti. Íbúar Havana urðu margir hverjir að ösla vatnselginn upp í axlir. Björgunarsveitir í kafarabúningum sóttu um 250 strandaglópa af heimilum sínum. MYND/AP

Fellibylurinn Wilma fór yfir Flórídaskaga og Kúbu í gær og varð umtalsvert tjón af völdum veðursins. Sunnar við Mexíkóflóa var hitabeltisstormurinn Alfa á ferðinni og varð í það minnsta átta manns að fjörtjóni.

"Ég hef hvorki fyrr né síðar upplifað annan eins veðurofsa, ég er nú 63 ára og hef oft verið í óveðri á Íslandi. Þeir voru eins og þytur í laufi í samanburði við þetta," sagði Ingvi Hrafn Jónsson fréttamaður.

Ingvi var í bænum Hollywood, rétt sunnan við Fort Lauderdale, og lenti bókstaflega undir auga stormsins.

"Það var líkt og risastór hendi væri að reyna að hrista húsið af grunninum. Myndir duttu af veggjunum og miklir brestir heyrðust í þakinu."

Vindhraði Wilmu var vel yfir fimmtíu metrar á sekúndu enda olli bylurinn umtalsverðu tjóni.

Einn maður lést í úthverfi Fort Lauderdale þegar tré féll á hann. Rúður brotnuðu í skýjakljúfum borgarinnar, raflínur slitnuðu og vatnsleiðslur rofnuðu.

"Það er ótrúlegt að horfa hérna yfir hverfið. Það er eins og risastór jarðýta hafi farið yfir og ýtt um koll trjánum sem eru hérna," sagði Ingvi Hrafn um ástandið í Hollywood.

Key West eyjaklasinn sem er suður af Flórída fór nánast á kaf í hamförunum og í Havana, höfuðborg Kúbu, festist fjöldi fólks í híbýlum sínum sem voru umlukin vatni.

Sunnar við Mexíkóflóann lét hitabeltisstormurinn Alfa til sín taka. Á Haítí fórust í það minnsta átta manns í veðurofsanum.

23 til viðbótar er saknað eftir að aurskriðum og vatnsflóð hrifu hús og bifreiðar með sér. Þrír menn eru ófundnir í Dóminíkanska lýðveldinu eftir óveðrið þar. Wilma heldur nú sem leið liggur norður eftir strönd Bandaríkjanna en stormurinn er svo langt úti á hafi að áhrif hans eru óveruleg.

Alfa mjakaði sér jafnframt út á Atlantshafið en er nú einungis meðaldjúp lægð. Alfa er 22. hitabeltisstormurinn á Atlantshafinu þetta árið en um slíkan fjölda eru engin dæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×