Erlent

Allt á huldu um orsakirnar

Af vettvangi. Unnið er að því að flytja lík fórnarlambanna af slysstað.
Af vettvangi. Unnið er að því að flytja lík fórnarlambanna af slysstað. MYND/AP

Nígerísk stjórnvöld reyna nú að finna skýringar á flugslysinu um helgina þegar Boeing 737-þota Bellview Airlines fórst á leið sinni frá Lagos til höfuðborgarinnar Abuja með 117 manns innanborðs. Yfirvöld útiloka ekki að um hryðjuverk sé að ræða þótt það sé talið ólíklegt. Vonast er til að fundur svörtu kassanna svonefndu muni varpa ljósi á málið.

Sjónvarps- og útvarpsstöð í landinu hefur verið lokað þar sem yfirvöld töldu fréttaflutning þeirra af slysinu vera óviðeigandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×