Erlent

Börn dóu í sprengjuárás

Særð á Líkama og sál. Þessi litla fjölskylda var á meðal þeirra sem meiddust í árásinni í Kirkuk í gær.
Særð á Líkama og sál. Þessi litla fjölskylda var á meðal þeirra sem meiddust í árásinni í Kirkuk í gær.
Háttsettur lögregluforingi í borginni Tikrit í Írak beið bana í sprengjuárás í gær ásamt tveimur ungum sonum sínum. Tvær telpur sem sátu í nálægri bifreið létust jafnframt í tilræðinu. Alls fórust tuttugu Írakar í árásum gærdagsins, þar á meðal tveir í Kirkuk þegar bifreið sem hlaðin var sprengiefni var ekið inn í bílalest bandarískra hermanna. Hermennirnir sluppu hins vegar með ­skrám­ur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×