Erlent

Stafirnir í stafrófinu búnir

Eftir storminn Íbúar Cancun í Mexíkó reyndu að ná áttum í gær. Ræningjar hafa hins vegar sætt lagi og stolið flestu sem hönd á festir.fréttablaðið/AP
Eftir storminn Íbúar Cancun í Mexíkó reyndu að ná áttum í gær. Ræningjar hafa hins vegar sætt lagi og stolið flestu sem hönd á festir.fréttablaðið/AP

Fellibylurinn Wilma yfirgaf loks Mexíkó í gær og hélt sem leið lá í átt til Flórídaríkis. Aldrei hafa jafn margir fellibyljir geisað á þessum slóðum á einu ári. Wilma hefur gert mikinn óskunda í löndunum við Mexíkóflóa undanfarna daga.

Um helgina hélt stormurinn sig við Yucatan-skaga í Mexíkó og varð þremur mönnum að fjörtjóni. Eyðileggingin er mikil í bæjum á borð við Cancun og til að bæta gráu ofan á svart hafa ræningjar látið greipar þar sópa. Í gær hélt bylurinn yfir flóann og tók hann land í Flórída í nótt. Þá var reyndar reiknað með að veðurhæðin hefði minnkað nokkuð en í gær flokkuðu veðurfræðingar Wilmu sem 2. gráðu fellibyl með um 44 metra vindhraða á sekúndu.

Engu að síður var 160.000 íbúum Flórída gert að rýma heimili sín um helgina.

Wilma er 22. Atlantshafsfellibylurinn sem myndast á þessu ári en engin dæmi eru um slíkan fjölda. Þegar enn ein lægðin sótti í sig veðrið á laugardaginn úti fyrir ströndum Dóminíkanska lýðveldisins urðu veðurfræðingar að nefna storminn Alfa, eftir fyrsta staf gríska stafrófsins, þar sem hefðbundnir nafnalistar voru uppurnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×