Kvaðst vera vitorðsmaður 24. október 2005 03:00 Frá Tavistock Square 52 biðu bana í hryðjuverkunum í Lundúnum í sumar og yfir 700 slösuðust.Fréttablaðið/ap
Breska lögreglan handtók um helgina mann sem viðurkenndi í blaðaviðtali að hafa verið í vitorði með mönnunum sem myrtu 52 í sprengjuárásum í Lundúnum 7. júlí. Sunnudagsblaðið News of the World greindi frá því í gær að lögregla í Dewsbury í Vestur-Jórvíkurskíri hefði í fyrradag handtekið Imran Patel eftir ábendingu frá ritstjórn blaðsins, en Patel hafði viðurkennt í samtali við blaðamann að hafa átt að taka þátt í hryðjuverkaárásunum. Að eigin sögn bað Mohammad Sidique Khan, leiðtogi árásarmannanna, Patel um að slást í hóp þeirra og hittist allur hópurinn á heimili þess síðarnefnda til skrafs og ráðagerða. Patel ákvað hins vegar að hætta við þátttöku þegar honum var sagt að barnaskóli ætti að vera eitt skotmarkanna. Engu að síður gerði hann lögreglu ekki viðvart þar sem hann vildi ekki koma félögum sínum í fangelsi. Talsverður viðbúnaður var í Dewsbury þegar maðurinn var handtekinn og var gerð húsleit á nokkrum heimilum í tengslum við málið. Patel er sá eini sem er í haldi vegna árásanna en fjórmenningarnir sem frömdu þær dóu allir í þeim.
Erlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira