Erlent

Mikill óhugur í Búlgaríu

Lík af tveimur Búlgörum sem rænt var í Írak eru fundin. Mikill óhugur hefur slegið um sig í Búlgaríu en hryðjuverkasamtök hafa hótað landinu árásum. Tveimur Búlgörum var rænt í byrjun mánaðarins. Lazov, þrjátíu ára, og Kepov, þrjátíu og tveggja ára, voru að afhenda bíla í borginni Mósúl í Norður-Írak í tengslum við vinnu sína þegar árásarmenn numu þá á brott. Mannræningjarnir kröfðust þess að Bandaríkjaher léti lausa nokkra fanga úr fangelsum sínum sem tengjast hryðjuverkasamtökum. Þeir sendu síðar myndband til arabísku sjónvarpsstöðvarinnar Al Jazeera sem sýndi annan fangann afhöfðaðan. Höfuðlaus líkami Lazovs fannst í síðustu viku en líkið af Kepov fannst í ánni Tígris, um 200 hundruð kílómetra norður af Bagdad, og höfuð hans lá skammt frá. Búlgarska þjóðin er í áfalli við þessar fregnir en búlgarski herinn hefur ekki verið lengi í Írak. Búlgaría er nú orðin brennidepill í baráttu hryðjuverkamanna en ekki er langt síðan hryðjuverkasamtök sem kenna sig við al-Kaída hótuðu bæði Búlgaríu og Póllandi árásum fyrir aðild sína í Íraksstríðinu. Búlgörsk stjórnvöld neita því að þau hafi hugleitt að draga her sinn út úr Írak sem samanstendur af 470 hermönnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×