Erlent

Filippseyingar á leið heim

Filippseyskar hersveitir í Írak eru nú á leið heim eftir að stjórnvöld tóku af skarið og virtu andmæli Bandaríkjastjórnar að vettugi. Vonir standa til að lífi filippseysks gísl verði fyrir vikið þyrmt. Hermenn og lögreglumenn frá Filippseyjum sem starfa í Írak eiga allir að fljúga heim á leið í dag. Seint í gærkvöldi fannst höfuðlaust lík á floti í ánni Tígris og var það klætt í appelsínugulan galla eins og margir gíslar mannræningja í landinu hafa verið. Ekki er vitað hvort um sé að ræða búlgarskan gísl sem drepinn var fyrr í vikunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×