Erlent

Verkamannaflokkurinn tapar sæti

Verkamannaflokkurinn breski tapaði einu þingsæti í aukakosningum sem fram fóru í gær. Litlu munaði að flokkurinn tapaði öðru sæti til. Frjálslyndir demókratar stálu sæti sem Verkamannaflokkurinn hefur haldið í Leicester og í Birmingham munaði aðeins hársbreidd að sömu sögu yrði að segja. Þetta er áfall fyrir flokkinn, einkum í ljósi þess að báðar borgirnar eru venju samkvæmt Verkamannaflokksborgir. Ósigurinn er einkum rakinn til skýrslu Butlers lávarðar sem birt var á miðvikudag og einnig til óánægju með stefnu Tony Blairs í Íraksmálinu. Þó að Verkamannaflokkurinn hafi tapað þingsæti hefur það í raun engin áhrif á þingmeirihlutann. Fréttaskýrendur telja það þó munu hafa áhrif á starfsandann innan þingflokksins og að gagnrýnisraddir muni síst þagna.  Umræður í æðstu röðum flokksins um bakslag vegna stríðsins í Írak eru sagðar háværar. Leiðtogar hafa, að sögn breskra dagblaða, miklar áhyggjur af því að stríðið geti haft áhrif á útkomu næstu þingkosninga sem fara að líkindum fram á næsta ári. Það er þó hugsanlega ákveðin huggun harmi gegn að Íhaldsflokknum gekk ekki mikið betur, þrátt fyrir að þar á bæ gerðu menn sér vonir um að óánægðir kjósendu myndu veita Íhaldsflokknum brautargengi. Íhaldsmenn hafa um hríð beðið þess að aukakosningar skiluðu þeim auknu fylgi sem fréttaskýrendur segja grundvöll þess að frambjóðendur flokksins eigi kost á að bola Verkamönnum frá völdum í næstu kosningum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×